Þar sem forvitnin kveikir áhugann

Náttúruvísindi í öllum bekkjum.
Náttúruvísindi í öllum bekkjum.

Hvað eru bylgjur? Hvað er hljóð? Hvað eru frumur, hvernig líta þær út og hvað gera þær? Bakteríur, góðgerlar? Hvað gerist þegar ólík efni blandast saman og efnahvörf eiga sér stað? Hvað í ósköpunum er efni?

Þetta eru dæmi um spurningar sem nemendur í fyrsta til sjöunda bekk velta fyrir sér, sjá og kanna þegar raungreinakennari á unglingastigi heimsækir yngri bekki skólans með fjölbreyttar tilraunir og verklegar athuganir í náttúruvísindum. Markmiðið er að vekja áhuga og forvitni nemenda þegar kemur að vísindum og gefa þeim tækifæri til að upplifa.

Með þessu er vonast til að skapa jákvæða reynslu af náttúruvísindum strax í yngstu bekkjum og lagður góður grunnur að vísindalæsi, gagnrýninni hugsun og áhuga á umhverfinu og heiminum í kringum okkur.

Kannski kviknar áhugi framtíðar vísindamannsins einmitt þegar lítil tilraun vekur stóra spurningu. Forvitni er neistinn sem við þurfum.