Tónlistin hefur áhrif

Eitt lag getur haft mikil áhrif á tilfinningar, róað eða lyft fólki upp. Tónlistin tengist minningum og augnablikum og hreinlega bætir hversdaginn. Segja má að tónlistin sé litur tilfinninganna og málar tilveruna eins og við finnum hana.

Nýlega kom Birna Eyfjörð Þorsteinsdóttir tónlistarkona í heimsókn til okkar með masterclass kynningu fyrr unglingana. Hún kynnti möguleikana sem búa í tónlistinni fyrir nemendum og hvernig ein lítil hugmynd getur orðið að heilu lagi eða stærra tónverki. Sömuleiðis hvernig má vinna með hugmyndir í tölvu og forritum sem eru í boði í dag. Reglulega skemmtilegt verkefni og hvetjandi fyrir nemendur enda Birnu afar vel tekið og kveikti neista í hugum margra. Við þökkum Tónlistarskóla Húsavíkur fyrir verkefnið.