- Skólinn
- Nemendur
- Foreldrar
- Jákvæður agi
- Bland í Borgó
- Farsæld barna
- Byrjendalæsi
Nemendur fjórða bekkjar hafa undanfarið rannsakað tímann og tæknibreytingar. Að skoða tæki sem hafa þróast eða úrelst; túbusjónvarpið, kasettur eða skífusímar. Nemendur fóru í vettvangsferð á Safnahúsið og könnuðu gamla muni og föt eins og ask og sauðskinnsskó.
Í þakklætishring sögðu nemendur frá þakklæti fyrir heitt vatn, rafmagnið og nettengingu. Samhliða þessari vinnu var lögð áhersla í stærðfræði á klukkuna og kyn- og fallbeyging nafnorða í íslensku. Lokaafurð verkefnisins var rannsókn á völdum tækjum eða hlutum og þróun þeirra í tímans rás. Auk þess áttu nemendur að ímynda sér hvernig hluturinn verður mögulega í framtíðinni. Verkefnið var unnið í tölvu og sýndu nemendur því áhuga og gekk það vel.

|
Skólagarði 1 | 640 Húsavík Sími á skrifstofu: 464-6140 Netfang: skoli@borgarholsskoli.is |
Skrifstofa skólans er opin frá |
