Undankeppni Stóru upplestrarkeppninnar

Þátttakendur í forkeppni Stóruupplestrarkeppninnar
Þátttakendur í forkeppni Stóruupplestrarkeppninnar
Í vikunni fór fram undankeppni skólans vegna Stóru upplestrarkeppninnar. Verkefnið sjálft hefst ár hvert á degi íslenskrar tungu, 16. nóvember. Þrettán nemendur 7. bekkjar öttu kappi í upplestri en keppnin fór fram í Sal skólans.

Það eru Raddir, samtök um vandaðan upplestur og framsögn sem standa fyrir keppninni á landsvísu en umsjón með verkefninu er í höndum skólaskrifstofa í hverju héraði.

Markmið með upplestrarkeppni er að vekja athygli og áhuga í skólum á vönduðum upplestri og framburði. Keppnin sjálf er í rauninni aukaatriði og forðast skyldi að einblína á sigur. Mestu skiptir að kennarar nýti þetta tækifæri til að leggja markvissa rækt við einn þátt móðurmálsins með nemendum sínum, vandaðan upplestur og framburð, og fái alla nemendur til að lesa upp, sjálfum sér og öðrum til ánægju. Stefnt skyldi að því að allur upplestur í tengslum við keppnina sé fremur í ætt við hátíð en keppni.

Á hátíðinni voru lesarar þau, Almar Örn Jónasson, Andri Már Sigursveinsson, Benedikt Kristján Guðbjartsson, Birta María Eiðsdóttir, Friðrik Aðalgeir Guðmundsson, Hermann Veigar Ragnarsson, Hreinn Kári Ólafsson, Karen Vala Daníelsdóttir, Kristey Marín Hallsdóttir, Sara Kristín Smáradóttir, Sigrún Egla Unnarsdóttir, Sigrún Marta Jónsdóttir og Sjöfn Hulda Jónsdóttir,

Fulltrúar skólans í lokakeppninni verða þau Andri Már, Karen Vala, Sigrún Egla, Sigrún Marta og Sjöfn Hulda Lokakeppnin fer fram í Safnahúsinu 9. mars næstkomandi kl. 14:00.

Athugasemdir