- Skólinn
- Nemendur
- Foreldrar
- Jákvæður agi
- Bland í Borgó
- Farsæld barna
Í lok skólagöngunnar á hverju skólaári safna nemendur tíunda bekkjar fyrir skólaferðalagi. Það hefur verið hefðbundið síðastliðin ár með upplifun og ævintýrum. Stór hluti af kostnaði er ferðakostnaður og gisting. Skólaferðalagið má líta á sem lok ákveðinna tímamóta, styrkja vináttubönd og skapa minningar. Sömuleiðis að læra og upplifa nýja hluti og efla sjálfstæði nemenda.
Í lok skólaárs fóru nememdur í vel heppnaða ferð sem hófst í Adrenalínagarðinu á Nesjavöllum. Þar er boðið uppá skemmtilega útivist, þrautabraut sem reynir á jafnvægi og styrk, einbeitingu, útsjónarsemi og samvinnu. Öll geta fundið áskorun við hæfi eins og risa róluna sem er sú hæsta á landinu, hvar einstaklingi er lyft í tólf metra hæð og síðan sleppt. Í Reykjavík var farið í litabolta þar sem nemendum er skipt í tvö lið, létu skotin dynja og keppt til síðasta manns.
Nemendur fóru út að borða á hinn huggulega stað í miðborg Reykjavíkur, Caruso og farið í keilu í Egilshöll sem vekur ávallt lukku og misgóðir taktar við brautina. Gist var á Cabin hótel í Reykjavík. Á síðasta degi var flúðasigling og ekið norður í Skagafjörð. Siglt er niður Vestari-Jökulsá með leiðsögn en siglingin er krefjandi og reynir á samvinnu og kjark sömuleiðis. Á leið niður ánna er dvalið við rólegan poll hvar nemendur geta stokkið út í ánna sem er mikil áskorun.
Ferðin tókst vel þrátt fyrir að veður hafi ekki verið hópum hagfellt enda rútan á nagladekkjum miðað við veðurspá. Eftir verða minningar og upplifun sem verður gaman að rifja upp í framtíðinni.
Skólagarði 1 | 640 Húsavík Sími á skrifstofu: 464-6140 Netfang: skoli@borgarholsskoli.is |
Skrifstofa skólans er opin frá |