Útskrift úr grunnskóla - til hamingju

Útskriftarhópur Borgarhólsskóla árið 2023
Útskriftarhópur Borgarhólsskóla árið 2023

Nemendur tíunda bekkjar kvöddu skólann sinn í dag eftir tíu ára skólagöngu með skólaskírteini í hönd. Hvert og eitt heldur sína leið með eigin markmið og stefnu í lífinu. Skólinn óskar nemendum og fjölskyldum þeirra til hamingju og velfarnaðar á lífsins leið.

Þórgunnur Reykjalín, skólastjóri kvaddi nemendur og fór stuttlega yfir skólagönguna síðastliðin ár. Árgangurinn sem nú útskrifast var á miklum mótunarárum þegar covid-19 heimsfaraldur skall á heimsbyggðinni. Krakkarnir settu ekki upp leikrit í sjöunda bekk og ýmsar takmarkanir voru á skólastarfi á þessum tíma. Eftir sem áður risu nemendur upp og ljúka skólagöngu sinni með sóma. Nú tekur við nýr kafli, spennandi og krefjandi tækifæri bíða.

Þórgunnur hvatti nemendur til að skara alltaf fram úr, koma fram við aðra af virðingu og góðvild og gefast aldrei upp á eigin draumum. Veröldin þarfnist hæfileika komandi kynslóða með sköpun og ástríðu að leiðarljósi. Hver er sinnar gæfusmiður og að framtíðin væri nemendanna sjálfra. Hún sagði m.a. að það fælist heilmikið nám í því að setja upp leiksýningar, taka þátt í fjáröflunum, skipuleggja viðburði, koma fram, stýra tæknimálum. Sömuleiðis að nemendur hefðu þurft að takast á við allskyns breytingar á sinni skólagöngu og náð að aðlaga sig að breyttum tímum.

Elva Rut Birkisdóttir, flutti ræðu og þakkarorð sem fulltrúi nemenda. Hún sagði að nemendur myndu sakna skólans og þess sem hann hefur upp á að bjóða. Þessi hópur hafi upplifað sérkennilega tíma í skólastarfinu þar sem víkja þurfti frá hefðbundu skólastarfi og hefðum í skólanum. Auk þess að upplifa símabann, „sem var bara ekkert svo hræðilegt“, sagði Elva Rut. Hún sagði að hópurinn hafi styrkst og eflst í tíunda bekk og nú sérstaklega með hækkandi sól. Mörg hafi farið út fyrir þægindarammann sinn og staðið undir því.

Foreldrar fluttu sömuleiðis þakkarorð til skólans, starfsfólks og þeim sem hafa komið að því að styðja við og aðstoða krakkana þeirra í þessu ferli öllu saman.

Nemendur fengu loks vitnisburð og útskriftarskírteini. Þar birtist námsmat í ýmsum kennslugreinum. Þar birtist ekki mat á kærleika, umburðarlyndi eða annarri færni og hæfni sem þarf í daglegu starfi og tilveru um ókomna tíð.

Að lokinni athöfn var boðið upp á hressingu og jafnframt tekin mynd í stiganum venju samkvæmt.

Við óskum útskriftarnemendum og fjölskyldum afur til hamingju með daginn og áfangann. Haldið út í heiminn með bros á vör. Ykkar er framtíðin. Gangi ykkur vel.

Elva Rut Birkisdóttir, fulltrúi nemenda, flutti þakkarorð.

Linda Birgisdóttir og Karl Hreiðarsson, foreldrafulltrúar, fluttu ræðu á athöfninni.


Athugasemdir