Verðmæti í félagslegum samskiptum

Dr. Viðar Halldórsson hélt fyrirlestur fyrir ungingana í dag um félagslega töfra.
Dr. Viðar Halldórsson hélt fyrirlestur fyrir ungingana í dag um félagslega töfra.

Hið ósýnilega afl öll okkar samskipti, augliti til auglitis. Þegar félagslegir töfrar myndast í samskiptum fólks sem stuðlar að vellíðan og árangri einstaklinga og hópa á fjölbreyttum sviðum samfélagsins. Dr. Viðar Halldórsson var með fyrirlestur fyrir nemendur áttunda og níunda bekkjar í morgun. En hvað eru þessir félagslegu töfrar? Því er svarað í fyrirlestrinum.

Félagslegir töfrar felast í þeim ósýnilegu en stórkostlegu og lífsnauðsynlegu verðmætum sem myndast í félagslegum samskiptum og samveru fólks í samfélagi. Félagslegir töfrar eru, með öðrum orðum, aflið sem mótar hugmyndir, hugsanir, hegðun og sjálfsmynd fólks, dregur fólk hvert að öðru, gerir hóp að liði, og samfélagi að samfélagi.

Heimsókn Viðars er á vegum HSÞ, Héraðssambands Þingeyinga og þökkum við þeim kærlega fyrir frumkvæðið og heimsóknina.

En Viðar er prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands og hefur stundað fjölda rannsókna á félagslegum samskiptum, stemningu og árangri. Viðar starfar einnig sem ráðgjafi fyrir íþróttalið og hefur hann starfað fyrir fjölmörg íslensk félagslið og landslið í ýmsum íþróttum. Hann afhenti skólanum að gjöf bókina sína Sjáum samfélagið sem er félagsfræðileg greining á nútímasamfélagi.

Sjá heimasíðu Viðars https://felagslegirtofrar.is/