- Skólinn
- Nemendur
- Foreldrar
- Jákvæður agi
- Bland í Borgó
- Farsæld barna
- Byrjendalæsi
Tilkynnt hefur verið um tilnefningar til Íslensku menntaverðlaunanna fyrir árið 2025. Markmið verðlaunanna er að vekja athygli samfélagsins á metnaðarfullu og vönduðu skóla- og frístundastarfi með börnum og unglingum.
Borgarhólsskóli í samstarfi við Grænuvelli er tilnefndur til verðlaunanna að þessu sinni fyrir framúrskarandi þróunarverkefni; samstarf um læsi og málörvun, Lítil skref á leið til læsis. Verkefni sem lúta að framúrskarandi þróunarverkefni þurfa að standast ítrustu gæðakröfur um markmið, leiðir, inntak, mat og kynningu, hafa samfélagslega skírskotun og nýtast til að efla menntun í landinu. Sjá umfjöllun Samtaka áhugafólks um skólaþróun um verkefnið Lítil skref á leið til læsis HÉR.
Skólagarði 1 | 640 Húsavík Sími á skrifstofu: 464-6140 Netfang: skoli@borgarholsskoli.is |
Skrifstofa skólans er opin frá |