Vorboðar í Grobbholti

Vorboðar birtast einn af öðrum með hækkandi sól. Nemendur sjöunda bekkjar fengu sér göngu upp á Skógargerðismelinn og litu við hjá bændunum í Grobbholti. Þar mátti finna nýborin lömbin, kindina Eldingu sem þykir einkar gæf og hrútinn Mola sem lék listir sínar.

Sauðburður sækist vel og báru bændur sig vel venju samkvæmt. Nemendur léku sér sömuleiðis með kanínur og hænur. Þau fengu fyrirlestur um húsdýrin og sveitalífið. Við þökkum fyrir ákaflega góðar móttökur.