Vorskóli nemenda Grænuvalla

Hér er unnið með stafinn Hh
Hér er unnið með stafinn Hh

Það er hefð fyrir því að elstu nemendur leikskólans Grænuvalla komi í Vorskóla til að undirbúa grunnskólagöngu sína. Nemendur komu í þrjá daga, fóru í íþróttatíma, könnuðu aðstæður í mötuneytinu og snæddu með yngstu nemendum Borgarhólsskóla. Nemendum var kennt eftir hugmyndafræði Byrjendalæsis og unnið með bókina Skrímsli í heimsókn. Sömuleiðis fengu nemendur nokkur stærðfræðidæmi og verkefni til að kljást við.

Markmið er að undirbúa nemendur fyrir næsta skólastig, kynnast umhverfinu innan og utan Borgarhólsskóla og hitta starfsfólk sem mun vinna með krökkunum. Reglulega skemmtilegt verkefni og ánægjuleg heimsókn nemenda Grænuvalla sem við hlökkum til að taka á móti í fyrsa bekk á nýju skólaári.