Skólamötuneyti Norðurþings fær framúrskarandi umsögn

F.v. Pablo Manrique de Lara, Witalij Šeršņovs, Dagný Þóra Gylfadóttir yfirmatráður og Jón Ásþór Sigu…
F.v. Pablo Manrique de Lara, Witalij Šeršņovs, Dagný Þóra Gylfadóttir yfirmatráður og Jón Ásþór Sigurðsson.

Matur er okkur mikið hjartans mál og daglegt umræðuefni líkt og íslensk veðrátta. Nýlega lauk úttekt heilbrigðiseftirlitsins á Skólamötuneyti Húsavíkur og umsögnin jákvæð. Hreinlæti, verklag, eftirlit og skráningar til fyrirmyndar. Eftirlitsaðili hrósaði sérstaklega fyrir góð vinnubrögð.

Á hverjum virkum degi er eldaður fjölbreyttur og næringarríkur matur fyrir hátt í 700 einstaklinga. Þar af rúmlega 50 einstaklingar sem fá sérútbúinn mat vegna fæðuónæmis. Mikil áhersla er lögð á gæði hráefnis, hollustu og að mæta ólíkum þörfum.

Unnið er eftir fjölbreyttum sjö vikna matseðli og eldað sem mest frá grunni. Kjötbollurnar innihalda 90% hreint kjöt, fiskibollurnar 90% fisk og grænmetisbuffin eru næringarrík. Þessir réttir eru jafnframt án eggja, mjólkur og glútens. Unnið er að innleiðingu á rafrænum skráningakerfum sem mun styrkja gæðaeftirlit og utanumhald enn frekar.

Þessi niðurstaða er reglulega ánægjuleg og viðurkenning á góðu starfi starfsfólks sem leggur daglega metnað í að bjóða upp á góðan, hollan og fjölbreyttan mat.

Góður skóladagur byggist á mörgu og þar skipta máltíðirnar miklu máli. Við megum vera stolt af því að geta boðið nemendum upp á svo vandaða þjónustu á hverjum degi. Það er samfélagslegt verðmæti sem vert er að halda á lofti.