Skylduvalgreinar til vors

Hver nemandi þarf að hafa þrjár skylduvalgreinar.
Hver nemandi þarf að hafa þrjár skylduvalgreinar.

Valgreinar eru hluti af skyldunámi. Í 8., 9. og 10. bekk grunnskóla skal nemendum gefinn kostur á að velja námsgreinar og námssvið sem svarar allt að þriðjungi námstímans.

Tilgangurinn með valfrelsi nemenda á unglingsstigi er að laga námið sem mest að þörfum einstaklingsins og gera hverjum og einum kleift að leggja eigin áherslur í námi miðað við áhugasvið og framtíðaráform í samvinnu við foreldra, kennara og námsráðgjafa. Val í námi skal miða að skipulegum undirbúningi fyrir nám í framhaldsskóla og taka mið af undirbúningi fyrir bóknám, starfsmenntun, list- og tækninám.

Borgarhólsskóli býður nemendum að velja á milli 20 valmöguleika; allt frá forritun, heimilisfræði, snyrtifræði, smíðar, jóga og svo margt fleira spennandi og skemmtilegt. Tónlistarnám, hverskonar æskulýðsstarf og íþróttaæfingar hjá viðurkenndum aðilum með skipulegum hætti flokkast hvort um sig sem einn valkostur. Jafnramt geta nemendur fengið hvers konar félagsstörf metin sem valgrein, s.s. sæti í nemendaráði, árshátíðarnefnd eða fjáröflunarnefnd 10. bekkjar. Atvinnuþátttaka er ekki metin.

Hver nemandi þarf að hafa 3 valgreinar eða valkosti. Foreldri eða forráðamaður þarf að skrifa undir valblaðið. Í dag fengu nemendur valblað sem og kynningu á valmöguleikum. Gert er ráð fyrir að skylduvalgreinar hefjist 14. janúar næstkomandi.

 

Það má nálgast lista og kynningu um valgreinar í Borgarhólsskóla með því að smella HÉR.

Valblað má nálgast HÉR.


Athugasemdir