Skylduvalgreinar til vors

Hvað skal velja?
Hvað skal velja?

Valgreinar eru hluti af skyldunámi. Í 8., 9. og 10. bekk grunnskóla skal nemendum gefinn kostur á að velja námsgreinar og námssvið sem svarar allt að þriðjungi námstímans.

Tilgangurinn með valfrelsi nemenda á unglingsstigi er að laga námið sem mest að þörfum einstaklingsins og gera hverjum og einum kleift að leggja eigin áherslur í námi miðað við áhugasvið og framtíðaráform í samvinnu við foreldra, kennara og námsráðgjafa. Val í námi skal miða að skipulegum undirbúningi fyrir nám í framhaldsskóla og taka mið af undirbúningi fyrir bóknám, starfsmenntun, list- og tækninám.

Borgarhólsskóli býður nemendum að velja á milli 28 fjölbreyttra valmöguleika; allt frá afbrotafræði, heimilisfræði, Fab Lab, smíðar, eftirréttum, rafíþróttum, Fiðring sem er hæfileikakeppni grunnskólanna á Norðurlandi og svo margt fleira spennandi og skemmtilegt. Tónlistarnám, hverskonar æskulýðsstarf og íþróttaæfingar hjá viðurkenndum aðilum með skipulegum hætti flokkast hvort um sig sem einn valkostur. Jafnframt geta nemendur fengið hvers konar félagsstörf metin sem valgrein, s.s. sæti í nemendaráði, árshátíðarnefnd eða fjáröflunarnefnd 10. bekkjar.

Hver nemandi þarf að hafa þrjár valgreinar eða valkosti. Í dag fengu nemendur valblað sem og kynningu á valmöguleikum. Nemendur skila valblaði fyrir jólaleyfi. Gert er ráð fyrir að skylduvalgreinar hefjist 9. janúar næstkomandi.

 

Kynningu á skylduvalgreinum má sjá HÉR.

Valgreinablaðið má sjá HÉR.


Athugasemdir