Skóladagatal næsta skólaárs 2026-2027

Skóladagatal skólans fyrir skólaárið 2026 og 2027 liggur fyrir og öllum aðgengilegt. Við hvetjum fólk til að kynna sér dagatalið. Skólastarfs hefst 24. ágúst 2026 hjá nemendum, haustfrí um miðjan október, litlu jól 18. desember, vetrarfrí í febrúar 2027 og lýkur skólahaldi 8. júní 2027.
Lesa meira

Öll dýrin í skóginum eiga að vera vinir

Það er rík hefð fyrir skólasamkomu í skólanum. Þar koma nemendur fram með atriði, dans og söng. Samkoman er liður í fjáröflun nemenda sjöunda bekkjar sem fer í skólabúðir að Reykjum í Hrútafirði. Dagskráin var fjölbreytt að vanda.
Lesa meira

Íslensk stjórnmál, kynning og kosningar

Stjórnmál eru hluti af námi tíundu bekkinga í þjóðfélagsfræði. Nýlega lauk lotu um íslensk stjórnmál þar sem nemendur sóttu m.a. sveitarstjórnarfund hjá sveitarstjórn Norðurþings. Eitt af verkefnum lotunnar var að kynna sér stjórnmálaflokk og stefnumál hans. Í kjölfarið áttu nemendur að búa til sinn eigin stjórnmálaflokk og vinna sín eigin málefni.
Lesa meira

Fyrirlögn matsferils gengið vel

Síðastliðna daga hafa nemendur í fjórða til og með níunda bekk þreytt stöðluð próf í íslensku með áherslu á lesskilningi og stærðfræði í fyrsta sinn. Um er að ræða framvindu- og stöðupróf. Þegar fram í sækir myndast matsferill hvers nemanda og saga um framvindu. Fyrirlögn hefur gengið ákaflega vel og nemendur staðið sig vel í framkvæmd prófanna. Niðurstöðu má vænta í maí nk. Forsjáraðilar geta nálgast niðurstöður barna sinni inni á Ísland.is með því að skrá sig inn á Mínar síður.
Lesa meira

Breyting á skóladagatali

Búið er að samþykkja breytingu á skóladagatali sem felur í sér að þann 6. maí nk. verður óskert kennsla en samkvæmt upphafleg dagatali átti að kenna til kl. 10:30 þann dag. Síðasti kennsludagur verður 5. júní í stað 8. júní.
Lesa meira

Menntastefna Norðurþings

Nýlega var menntastefna Norðurþings 2026-2031 samþykkt í sveitarstjórn Norðurþings sem byggir á skólastefnu frá 2020. Innan hennar má m.a. finna læsisstefnu. Samkvæmt lögum um leik- og grunnskóla skal hvert sveitarfélag setja sér stefnu um skólahald og nær þessi nýja menntastefna yfir alla starfsemi leikskóla, grunnskóla og tónlistarskóla Norðurþings.
Lesa meira

Kaffiskrúbbur og fílatannkrem

Í náttúrugreinum er áhersla hjá unglingarnir á umhverfisfræði. Unnið er með skapandi og fræðandi verkefni þar sem þau útbjuggu heimatilbúinn kaffiskrúbb. Notuð voru einföld og náttúruleg hráefni – kaffi, kókosolía og sykur.
Lesa meira

Heimsókn frá samfélagslöggunni

Fræðsla samfélagslögreglu miðar að því að auka öryggi borgaranna og koma í veg fyrir afbrot. Samfélagslöggur hafa undanfarið verið að heimsækja skóla til að miðla upplýsingum um öryggi og forvarnir. Umfjöllunarefnið getur verið; samskipti, netöryggi, ofbeldi eða umferðaröryggi. Ekki þarf að greiða fyrir fræðslu frá lögreglunni. Lögreglumenn sem sinna fræðslunni starfa líka sem lögreglumenn á vakt og eru heimsóknirnar hluti starfs þeirra.
Lesa meira

Salarskemmtun sem eðalsteinn

Nemendur annars bekkjar skemmtu samnemendum, foreldrum og öðrum gestum á Sal í morgun. En þau hafa verið að læra um klukkuna, lesa bókina Tóta og tíminn eftir Bergljótu Arnalds og tengja það við Byrjendalæsi. Auk þess tengt vinnuna við stærðfræði og vinnu í Sprota. Salarskemmtunin samþætt við námið og því sett upp leikrit úr bókinni.
Lesa meira

Stöðupróf í íslensku og stærðfræði

Matsferill er nýtt námsmatskerfi sem dregur upp heildstæða mynd af námslegri stöðu og framförum nemenda reglulega yfir skólagönguna. Tilgangurinn er að stuðla að bættum námsárangri nemenda á Íslandi með reglubundnu og markvissu mati. Í marsmánuði munu nemendur í fjórða til og með tíunda bekk þreyta framvindu- og stöðupróf í íslensku (með áherslu á lesskilning) og stærðfræði.
Lesa meira